29. ágúst 2006 klukkan 04:29
Helga Sif Halldórsdóttir
05. ágúst 2006 klukkan 11:33
Já svona er það bara, ég er að vinna alla verslunarmannahelgina. Ég væri svo til í að vera á útihátið einhvers staðar, eða bara í góðra vinahópi með kassagítarinn, bjór og varðeld....rosalega væri það nice!!!
Það verður kannski næstu verslunarmannahelgi.

Marín fór til Fljótavíkur með pabba og co. Svo að ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af pössun meðan ég er að vinna....ótrúlega þæginlegt. En maður saknar hennar þegar að hún er svona í burta og maður getur ekkert talað við hana, en hún kemur heim á mánudaginn.
Núna er ég að vinna á næturvöktum og sef því á daginn og geri nánast ekkert nema að sofa og fara í ræktina eða út að hlaupa.......tala ekki við neinn.....svo leiðinleg alltaf.....sorry
Það eina sem ég hef gert síðan að ég kom vestur er að fara á Ögurball, sem by the way var mjög skemmtilegt, eins og alltaf......
Annars er Drífa að koma heim til Íslands í dag...Velkomin heim, við erum búin að sakna þín..... það verður gaman að geta farið í heimsókn til hennar á Hellu í vetur og hitta hann Elvis okkar (en það er hesturinn okkar).
Svo verður svaka fjör í vetur, því að Kolla er að flytja á Laugarvatn, en hún er að fara í íþróttakennaraskólann, svo er Helga Kristín flutt til Grindavíkur...svo við verðum allar á sunnanverðu landinu..... í vetur.
Annars er ekki mikið meira að gerast eins og er.....
Ég bið bara að heilsa í bili
Sifjan
Helga Sif Halldórsdóttir
13. júlí 2006 klukkan 16:16
já já ég ákvað að betra væri að prófa nýju síðuna hjá bloggar.is vegna þess að ég var orðin svo þreytt á blog.central.is.
En það er langt síðan að ég stofnaði þessa síðu vegna þess að ég var að prófa mig áfram...en er búin að ákveða að færa mig alfarið yfir á bloggar.is
Ég er að fara vestur á laugardagsmorgun og byrja að vinna kl 10 þann dag. Verður mjög skemmtileg tilbreyting að fara vinna fyrir vestan en ekki vera fyrir framan tölvuna allan daginn. 
Annars er Inga að reyna draga mig til Eyja um verslunarmannahelgina sem væri alveg geggjað ef maður kemst, annars lýst mér líka vel á að fara með Sigga og Marín til Fljótavíkur...Við bara að hafa það gott, áður en að Siggi ferí skólann.
Svo er líka verið að skipuleggja ferð á Ögurballið sem verður 22. júní og ætlar Inga að koma vestur og Gyða og Thelma ætla að koma líka svo að það verður stuð.
Alla vega bið að heilsa í bili
Sifjan
06. maí 2006 klukkan 22:35
Já þannig er með mál og vexti að ég kunni ekkert á blog.central.is og langaði til þess að geta sett inn myndir og svona....svo núna er það komið.
Allt á einum stað

Siggi á afmæli í dag og hann er fyrir vestan og Marín í sumarbústað með Pétri og Beggó. Svo að mín er bara ein í Reykjavíkinni
ER BÚIN AÐ BORÐA ÓGEÐSLEGAN MAT ÁTVO DAGA!!! HJÁLP...hehehe
Já núna fer að styttast í ferðina til Herrljunga í Svíþjóð.....get ekki beðið....
Jæja núna ætla ég að hætta í bili en ég verð dugleg að blogga...hehehe
Helga Sif Halldórsdóttir